Skip to main content
Fréttir

FUNDUR HJÁ FAS

By 8. janúar, 2007No Comments

Miðvikudaginn 10. janúar 2007 er fyrsti fundur hins nýja árs hjá FAS. Allir foreldrar og aðrir aðstandendur samkynhneigðra eru velkomnir. Formlegur fundur hefst stundvíslega kl. 20.30 og lýkur kl. 21.30 en æskilegt er að mæta nokkru áður. Einnig sitjum við oft og röbbum saman eftir að formlegum fundi lýkur. Léttar veitingar á staðnum.

Við hittum foreldra ungliðahópsins á foreldrakvöldi 26. nóvember og kynntum starfsemi FAS. Þar voru margir sem sýndu því áhuga að koma á fund og í tilefni þess er efni þessa fundar: Hvað vilja foreldrar ungliða innan Samtakanna´78 vita um samkynhneigð?

Á fundum okkar fá allir tækifæri til að tjá sig um það sem þeim liggur á hjarta eða vilja kynna sér betur. Vonumst til að sjá sem flesta.

-stjórn FAS

 

Leave a Reply