Skip to main content
Fréttir

FUNDUR HJÁ FAS

By 11. apríl, 2006No Comments

Stuðningsfundur foreldra og aðstandenda samkynhneigðra verður miðvikudaginn 12. apríl
í félagsmiðstöð Samtakanna ´78, Laugarveg 3, 4. hæð.

Umræðuefni: Skólinn og samkynhneigð.

Fundurinn hefst kl. 20:30.
Ef fólk hefur þörf fyrir rólega stund og spjall fyrir fundinn
er alltaf einhver til staðar frá kl 20:00.

Markmið okkar er að hittast og deila hvert með öðru reynslu okkar, styrk og vonum. Við leggjum rækt við okkur sjálf og teljum að með því
séum við betur aflögufær til að vera bakhjarlar
við ástvini okkar.

Við vinnum að fræðslu bæði opnum fundum og einnig innan okkar hóps.
Markmið okkar er
að efla umræðu í okkar nánasta umhverfi og út í samfélagið
til að auka skilning og þekkingu á samkynhneigð
sem er fjölskyldumál.

________________________________________

Næsti fræðslufundur hjá FAS

verður miðvikudaginn 26. apríl
í fundarsal Þjóðarbókhlöðu – Háskólabókasafni, Arngrímsgötu 3
og hefst kl. 20:00.

Harpa Njáls verður með erindi:

Hvað mótar viðhorf samfélags til samkynhneigðar og samkynhneigðra?

Fyrirspurnir og umræður á eftir.

Fundurinn 26. apríl er öllum opinn.
Við hvetjum félaga til að mæta og taka með gesti.

Leave a Reply