Skip to main content
Fréttir

FUNDUR HJÁ UNGMENNAHÓPI

By 14. júní, 2007No Comments

Næsti fundur í ungliðahópi Samtakanna ’78 verður sunnudaginn 22. júlí klukkan 20:00 í félagsheimili Samtakanna, Laugavegi 3.

Ungliðahópurinn er ætlaður samkynhneigðum og tvíkynhneigðum ungmennum á aldrinum 14-20 ára og er tilgangur hans að skapa og styrkja félagsleg tengsl milli ungs fólks á þessum aldri. Margt spennandi er á döfinni hjá krökkunum. Þau bjóða til sín alls konar gestum úr þjóðfélaginu til að ræða spennandi málefni, halda videokvöld, árshátíð, kvikmyndanámskeið og margt fleira. Það er þeirra sjálfra að móta dagskrána með stjórnendum hópsins, þeim Brynjari, Hafsteini, Gumma og Örnu.

Til þess að fá fréttir af því sem er að gerast er tilvalið að skrifa hópnum og láta skrá sig á netfangalistann. Netfang hópsins er unglidar@hotmail.com og það eru stjórnendurnir sem annast pósthólfið og svara bréfum, litið er á öll bréf sem trúnaðarmál. Ef þér finnst þægilegra að hitta þau áður en þú kemur á vettvang þá geturðu sent tölvupóst eða hringt á skrifstofu Samtakanna ’78 alla virka daga frá 13-17.

Leave a Reply