Skip to main content
Fréttir

Fundur í trúarhópi

By 9. desember, 2003No Comments

Tilkynningar Næsti fundur hjá trúarhópnum er fimmtudaginn 11. desember kl.20.00 í félagsheimili Samtakanna ´78, Laugavegi 3. Það verður jólastemning hjá okkur og við spjöllum saman um áframhald starfsins og eigum huggulega stund. Að venju eru allir velkomnir til að koma og njóta samverustundarinnar.

Trúarhópur Samtakanna 78 er ekki bara fyrir þá er játa kristna trú heldur alla sem áhuga hafa á trúmálum, hverrar trúar sem þeir eru. Við hvetjum alla sem áhuga hafa að koma á fundi okkar og fræða okkur um sína trú og sína afstöðu til hennar og annarra trúarbragða.

-Trúarhópur Samtakanna ´78

Leave a Reply