Skip to main content
Fréttir

FUNDUR Í UNGMENNAHÓPI: FRÆÐSLUFUNDUR UM KYNLÍF OG KYNHEILBRIGÐI

By 1. apríl, 2007No Comments

Næsti fundur í ungliðahópi Samtakanna ’78 verður sunnudaginn 15. apríl klukkan 20:00 í félagsheimili Samtakanna, Laugavegi 3.

Á fundinum á sunnudaginn mun Sigurlaug Haukssdóttir vera með fræðslukvöld um kynlíf undir yfirskriftinni: Njótum kynlífs! – fræðslufundur um kynlíf, kynheilbrigði og sjúkdóminn HIV/alnæmi.

Fjallað verður um hvað sé mikilvægt að hafa í huga í kynlífi og hvernig kynheilbrigði ungs fólks sé háttað hér á landi. Sjúkdómurinn HIV/alnæmi fær sérstaka umfjöllun og mikil áhersla verður lögð á umræður.
 
Ungliðahópurinn er ætlaður samkynhneigðum og tvíkynhneigðum ungmennum á aldrinum 14-19 ára. Tilgangur hans er að skapa og styrkja félagsleg tengsl milli þeirra. Margt spennandi er á döfinni hjá krökkunum. Þau bjóða til sín alls konar gestum úr þjóðfélaginu til að ræða spennandi málefni, halda videokvöld, árshátíð, kvikmyndanámskeið og margt fleira. Það er þeirra sjálfra að móta dagskrána með stjórnendum hópsins, þeim Andra, Brynjari, Hafsteini og Örnu.

Til þess að fá fréttir af því sem er að gerast er tilvalið að skrifa hópnum og láta skrá sig á netfangalistann. Netfang hópsins er unglidar@hotmail.com og það eru stjórnendurnir sem annast pósthólfið og svara bréfum, litið er á öll bréf sem trúnaðarmál. Ef þér finnst þægilegra að hitta þau áður en þú kemur á vettvang þá geturðu sent tölvupóst eða hringt á skrifstofu Samtakanna ’78 alla virka daga frá 13-17.

Leave a Reply