Skip to main content
Fréttir

FUNDUR UM ÆTTLIEÐINGAR- OG FÓSTURMÁL

By 16. febrúar, 2007No Comments

Fimmtudaginn 22. febrúar halda Samtökin ´78 fræðsu- og umræðufund um ættleiðingar og fósturmál. Margir samkynhneigðir óska eftir að taka að sér barn til að annast og ala upp. Tvær leiðir sem gjarnan eru hugleiddar eru að taka að sér barn í fóstur eða ættleiða barn. Þessar tvær leiðir eru um margt ólíkar, og ólík lög sem um þær gilda.

Fimmtudaginn 22. febrúar halda Samtökin ´78 fræðsu- og umræðufund um ættleiðingar og fósturmál.

Margir samkynhneigðir óska eftir að taka að sér barn til að annast og ala upp. Tvær leiðir sem gjarnan eru hugleiddar eru að taka að sér barn í fóstur eða ættleiða barn. Þessar tvær leiðir eru um margt ólíkar, og ólík lög sem um þær gilda.

Ákvæði um fósturbörn er að finna í barnaverndarlögum nr. 80/2002. Barn getur verið í tímabundnu eða varanlegu fóstri og barnið á alltaf rétt á samskiptum við kynforeldra sína á meðan það er í fóstri.

Þegar barn er ættleidd eru öll tengsl við kynforeldra slitin og barnið elst upp sem eigið barn kjörforeldra sinna. Ástæðan fyrir ættleiðingu geta verið ólíkar og ættleiðingar því gjarnan flokkaðar í stjúpættleiðingar, frumættleiðingar og erlendar ættleiðingar.

Á fundinum mun Anni G. Haugen, félagsráðgjafi, halda stutta framsögu þar sem fjallað er nánar um forsendur þess að börn fari í fóstur eða eru ættleidd og þá lagaramma sem um er að ræða. Á fundinum verða einnig fulltrúar úr stjórn Íslenskrar ættleiðingar sem svara munu spurningum gesta fyrir hönd félagsins.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 22. febrúar í Regnbogasal Samtakanna ´78 og hefst kl. 21.

Allir áhugasamir um málefnið eru hjartanlega velkomnir.

-Samtökin ´78

Leave a Reply