Skip to main content
Fréttir

GÖNGUHÓPURINN LEGGUR Í'ANN FRÁ VESTURBÆJARLAUG

Áhugasamir meðlimir í Samtökunum ´78 um útiveru og hreyfingu hafa ákveðið að koma á fót gönguhóp. Gengið verður frá er Sundlaug Vesturbæjar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30, á sama tíma og hlaupahópurinn. Mestu máli skiptir að koma og vera með í skemmtilegum félagsskap og velja hraða sem hentar hverjum einstakling fyrir sig.

Liðstjóri er Inga Margrét Róbertsdóttir, sjúkraþjálfari
Hægt er að hafa samband við hana í síma 8 999 123 eða senda henni póst á netfangið imr@simnet.is

Sjáumst við Vesturbæjarlaugina á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 í íþróttaskónum eða gönguskónum !

-Samtökin ´78

Leave a Reply