Skip to main content
Fréttir

Hinsegin Alþingi? – á morgun

By 17. apríl, 2013No Comments

Á morgun, fimmtudaginn 18. apríl bjóða Samtökin ’78 til fundarins “Hinsegin Alþingi? -stefnumót stjórnmálanna og Samtakanna ’78”. Fundurinn fer fram í Regnbogasal Samtakanna ’78 og hefst kl. 20:00.

Fundarstjóri verður útvarpsmaðurinn góðkunni Guðfinnur Sigurvinsson.

Fulltrúar ellefu framboða hafa boðað komu sína á fundinn. En þeir koma frá Bjartri framtíð, Dögun, Framsóknaflokki, Húmanistaflokki, Hægri grænum, Lýðræðisvaktinni, Pírötum, Regnboganum, Samfylkingu, Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum.

Í gær fengu framboðin sent bréf með helstu upplýsingum um fundinn. Bréfið innihélt meðal annars spurningar tengdum nokkrum málefnum hinsegin fólks sem fulltrúunum gefst kostur á að svara á fundinum en auk þess verður opið fyrir spurningar úr sal. Bréfið (og spurningarnar) má sjá hér. Einnig má finna Facebook-viðburð fundarins hér

Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta á morgun!

Leave a Reply