Skip to main content
Fréttir

Hinsegin bíódagar!

By 28. júlí, 2011No Comments

Hinsegin bíódagar í Bíó Paradís

 

Hinsegin bíódagar hafa nú verið endurvaktir eftir nokkurt hlé og eru haldnir dagana 29. júlí til 7. ágúst í Bíó Paradís við Hverfisgötu. Þeir eru að þessu sinni samvinnuverkefni Bíó Paradís og Hinsegin daga í Reykjavík en listrænir ráðunautar úr okkar hópi eru Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Þorvaldur Kristinsson. Um leið er það nýjung í sögu hátíðarhaldanna sem nú fara í hönd að bjóða upp á kvikmyndir sem miðla hinsegin veruleika. Við hvetjum alla til að njóta þess sem boðið er. Afsláttur á miðaverði til VIP-korthafa Hinsegin daga. Sjá sýnishorn úr myndunum á www.bioparadis.is

 

Fjórar nýjar myndir eru sýndar á hátíðinni

 

Howl (Ýlfur) Bandaríkin 2010. Íslenskur texti. Leikstjórar: Rob Epstein, Jeffrey Friedman. Aðalhlutverk: James Franco, Todd Rotondi og Jon Prescott

Myndin lýsir atriðum úr lífi hins heimsfræga bandaríska rithöfundar og homma Allan Ginsberg sem var einn af forvígismönnum „Beat kynslóðarinnar“ svonefndu. Í ólínulagaðri frásögn er fléttað sama þáttum úr lífi hans á fimmta og sjötta áratug liðinnar aldar, frumflutningi hans á hinu fræga ljóði sínu Howl, sviðsetningu ljóðsins í hreyfimynd og réttarhöldum yfir útgefanda bókarinnar sem kærður var fyrir brot á velsæmi árið 1957. Myndin hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga.

 

Broderskap (Bræðralag). Danmörk 2009. Enskur texti. Leikstjóri: Nicolo Donato

Aðalhlutverk: Nicolas Bro, David Dencik og Thure Lindhart

Tveir fyrrum hermenn kynnast þegar þeir hefja þjálfun hjá hreyfingu nýnasista. Í fyrstu lendir þeim harkalega saman en samband þeirra breytist við nánari kynni í gagnkvæma virðingu og vináttu og loks í ástarsamband. Þegar hið nána samband þeirra uppgötvast standa þeir frammi fyrir mikilli hættu. Ein athyglisverðasta mynd síðari ára á Norðurlöndum, sýnd í samvinnu við Danska sendiráðið á Íslandi.

 

Tomboy (Strákastelpa). Frakkland 2011. Ensku texti. Leikstjóri: Céline Sciamma. Aðalhlutverk: Zoé Héran, Malonn Lévana og Jeanne Disson

Ung stúlka, Laure, flytur á nýjan stað eitt sumar. Hún kynnir sig fyrir nágrönnunum og segist heita Mickaël. Blekkingin tekst en þá verður ein af vinkonunum ástfangin af  Mickaël” og málin flækjast. Myndin hefur hlotið verðlaun og tilnefningar

 

L’Arbre et la forêt (Skógurinn og trén) Frakkland 2010. Enskur texti. Leikstjórar: Olivier Ducastel, Jacques Martineau. Aðalhlutverk: Guy Marchand, Françoise Fabian og Sabrina Seyvecou.

Frederick er höfuð virðulegrar efnafjölskyldu og síðastliðin sextíu ár hefur hann átt sér leyndarmál. Kona hans og elsti sonur eru þau einu sem vita hið sanna. Samband hans við soninn er erfitt en þegar sonurinn fellur skyndilega frá, finnur Frederick sig knúinn til að koma úr skápnum og opinbera samkynhneigð sína. Við það hriktir í stoðum fjölskyldunnar. Myndin hefur fengið frábæra dóma.

 


Sýningartímar

 

29. júlí – Ýlfur (20:00), Bræðralag (22:00)
30. júlí – Ýlfur (22:00)
31. júlí – Bræðralag (20:00), Ýlfur (22:00)
1. ágúst – Ýlfur (20:00), Skógurinn og trén (22:00)
2. ágúst – Skógurinn og trén (20:00), Ýlfur (22:00)
3. ágúst – Skógurinn og trén (20:00), Ýlfur (22:00)
4. ágúst – Ýlfur (20:00), Strákastelpa (22:00)
5. ágúst – Strákastelpa (20:00), Ýlfur (22:00)
6. ágúst – Ýlfur (20:00), Strákastelpa (22:00)
7. ágúst – Bræðralag (20:00), Ýlfur (22:00)

 

 

Leave a Reply