Hinsegin kórinn er kór hinsegin fólks í Reykjavík og nágrenni.
Tilgangur kórins er að vera fordómalaus vettvangur fyrir hinsegin fólk að hittast og njóta söngs saman.
Þá vill kórinn vinna að þátttöku hinsegin fólks í menningarlífinu, vera jákvæð fyrirmynd og stuðla að sýnileika hinsegin fólks.
Hinsegin kórinn á aðild að Legato, samtökum hinsegin kóra um allan heim.
Kórinn æfir að jafnaði vikulega og eru æfingar á mánudögum kl. 20:00 í sal Samtakanna ’78, Laugavegi 3, 4. hæð.
Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri, bæði á sjálfstæðum tónleikum og við önnur tilefni auk þess sem kórferðir innalands og erlendis eru á döfinni.
Hinsegin kórinn er öllum opinn, hinsegin eða svona, að undangengnm raddprófum. Áhugasamir eru hvattir til að mæta á æfingu.
Stjórnandi kórsins er Helga Margrét Marzellíusardóttir.
Hægt er að bóka Hinsegin kórinn til að syngja á hinum ýmsu viðburðum gegn sanngjarni þóknun sem rennur til starfsins.
Til að bóka er hægt að senda póst á hinseginkorinn@gmail.com eða hafa samband við formann Ástu Ósk Hlöðversdóttur í síma 8686855.
Sjá einnig síðu kórsins á Facebook: https://www.facebook.com/hinseginkorinn