Skip to main content
Fréttir

Hópur aðstandenda transfólks

By 15. október, 2012No Comments

AÐSTANDENDUR TRANSFÓLKS ATHUGIÐ
Þriðjudaginn 23. Október kl. 20.00  fer í gang lokaður hópur fyrir aðstandendur transfólks.
Foreldrar barna og ungs fólks í kynáttunarvanda eru sérstaklega velkomnir.
Það er alltaf gott að hitta aðra sem eru í svipuðum aðstæðum og maður sjálfur og ræða málin opinskátt.
Þarna gefst tækifæri á að spyrja spurninga og deila með öðrum upplifunum, jákvæðum og neikvæðum.
Eins er þetta gott tækifæri til þess að afla sér upplýsinga um efni sem ekki alltaf er aðgengilegt.
Sigríður Birna Valsdóttir ráðgjafi hjá Samtökunum ´78 leiðir hópinn.
Sigríður er leiklistar- og fjölskyldumeðferðarfræðingur að mennt og hefur starfað sem meðferðarfræðingur í 10 ár.

Hópurinn mun hittast í Regnbogasal Samtakanna ´78, Laugavegi 3, 4.hæð. 

Leave a Reply