Skip to main content
Fréttir

Hópur fyrir foreldra og aðstandendur transfólks

By 26. febrúar, 2013No Comments
Á morgun miðvikudag 27. febrúar 2013 hittist hópur fyrir foreldra og aðstandendur transfólks kl. 20.00 í húsnæði Samtakanna ’78, Laugavegi 3, 4. hæð. 

Foreldrar barna í kynáttunarvanda eru sérstaklega velkomnir. 

Það er alltaf gott að hitta aðra sem eru í svipuðum aðstæðum og maður sjálfur og ræða málin opinskátt. Þarna gefst tækifæri á að spyrja spurninga og deila með öðrum upplifunum, jákvæðum og neikvæðum. Eins er þetta gott tækifæri til þess að afla sér upplýsinga um efni sem ekki alltaf er aðgengilegt.

Sigríður Birna Valsdóttir ráðgjafi hjá Samtökunum ´78 leiðir hópinn. Sigríður er leiklistar- og fjölskyldumeðferðarfræðingur að mennt og hefur starfað sem meðferðarfræðingur í 10 ár. 

 
Frekari upplýsingar í síma 694 8313

Leave a Reply