HIV (Human Immunodeficiency Virus) er veira sem berst milli einstaklinga með sæði, leggangaslími og blóði og brýtur niður ónæmiskerfi* líkamans á löngum tíma. Einstaklingar með HIV verða venjulega ekki veikir fyrstu árin eftir að þeir smitast, en smám saman vinnur veiran á vörnum líkamans og skemmir ónæmiskerfið. Þeir sem eru smitaðir af HIV eru alltaf með veiruna í líkamanum og geta smitað aðra það sem eftir er ævinnar (texti fengin frá HIV-Ísland, www.hiv-island.is)
HIV getur smitast frá karli til konu, frá konu til karls og frá karli til karls. Meiri líkur eru á smiti ef annar eða báðir aðilar hafa aðra kynsjúkdóma. Munnmök geta líka valdið smiti, það er að segja ef snerting verður á milli kynfæra og munns/tungu. Þetta á sérstaklega við ef rispur eða sár eru í munni eða á kynfærum.
HIV smit getur átt sér stað:
- við óvarðar samfarir konu og karls eða tveggja karla.
- við beina snertingu við veiruna í gegnum blóð, sæði eða leggangaslím,
- við deilingu sprautunála sem eru mengaðar af HIV,
- við blóðgjöf, ef blóðið er sýkt af HIV.
- frá móður til barns á meðgöngu, við fæðingu eða brjóstagjöf.
HIV smitast ekki við venjulega umgengni:
- Í gegnum heilbrigða húð
- Með lofti og vatni.
- Með flugnabiti.
- Með mat og drykk.
- Með glösum, diskum og þess háttar.
- Með sængum, handklæðum og þess háttar.
- Af salernissetum eða baðkörum.
- Með kossum.
- Með hnerrum og hósta.
- Með svita.
- Með hori og tárum.
- Með handabandi.
Heimild: HIV-Ísland, www.hiv-island.is