Við mælum með því að þú pantir viðtal hjá félagsráðgjafa í Samtökunum '78 en þeir hafa mikla reynslu í því að ræða við samkynhneigða í sömu stöðu og þú ert. Viðtal við ráðgjafa hefur reynst mörgum vel og kærkomið tækifæri til að ræða við einhvern um tilfinningar sínar og aðstæður. Boðið er upp á klukkutíma viðtal í 2-3 skipti í senn og eru viðtölin ókeypis.
Hægt er að panta tíma hjá ráðgjafa en hjá Samtökunum ’78 í síma 552 7878. Ráðgjöf sinna þær Elísabet Þorgeirsdóttir og Sigga Birna Valsdóttir. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið skrifstofa@samtokin78.is