Skip to main content
Fréttir

Hýryrði 2015: Nýyrðasamkeppni Samtakanna‘78

By 5. ágúst, 2015No Comments

Fjölmörg orð eru til í hinsegin orðaforðanum sem enn hafa ekki fengið íslenska þýðingu, en hinsegin hugtök og orð endurspegla svo sannarlega þá breidd sem er til staðar í hinsegin samfélaginu. Það er mikilvægt að við getum öll talað um hinsegin reynslu og hinsegin líf á móðurmáli okkar. Samtökin ’78 efna því til nýyrðasamkeppni, sem fengið hefur heitið Hýryrði 2015. Þau orð sem  þarfnast íslensks nýyrðis eru eftirfarandi:

Kyntjáning: Androgynous – Butch – Femme 

Kynvitund: Agender – Androgyne – Bigender – Gender fluid – Non-binary – Pangender

Kynhneigð: Asexual – Aromantic

Ókyngreind frændsemisorð: Frænka/frændi – Kærasti/kærasta – Mamma/pabbi – Sonur/dóttir – Vinkona/vinur

Dómnefnd skipuð hinsegin fólki, sérfræðingum í íslensku máli og kynjafræði mun velja bestu orðin, en viðurkenningar verða veittar á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember.

Dómnefnd skipar fjölbreyttur hópur fólks, en þau eru; Ágústa Þorbergsdóttir, Gyða Margrét Pétursdóttir, Guðmunda Smári Veigarsdóttir, Setta María, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir og Örn Danival Kristjánsson.

Allar nánari upplýsingar um orðin og skilgreiningar á þeim er að finna á heimasíðu keppninnar:

samkeppni.samtokin78.is

Við hvetjum öll þau sem hafa áhuga á íslenskri tungu og hinsegin menningu til þess að taka þátt og senda inn tillögur að nýyrðum. Keppnin hefst í dag 4. ágúst, en hægt verður að senda inn tillögur að orðum til 4. september næstkomandi á slóðinni samkeppni.samtokin78.is. Einnig vekjum við athygli á myllumerkinu #hýryrði á Twitter, sem er kjörinn vettvangur fyrir þátttakendur til þess að deila hugmyndum sínum og pælingum með öðrum sem hafa áhuga á keppninni.

Leave a Reply