Samtökin ’78 og Íslandshótel undirrituðu á Hinsegin dögum þriggja ára samstarfssamning þar sem Íslandshótel verða aðalbakhjarl Regnbogafjölskyldu Samtakanna ’78. Með samkomulaginu eru Íslandshótel fyrst fyrirtækja til að ganga í hina svokölluðu Regnbogafjölskylda Samtakanna. Hugmyndin með fjölskyldunni er að mynda hóp fyrirtækja sem standa myndarlega að baki Samtökunum ’78.
Það er okkur hjá Samtökunum ’78 ótrúlega dýrmætt að hafa trausta og öfluga bakhjarla sem styðja við fjölbreytta og mikilvæga starfsemi félagsins.
Með samstarfinu styðja Íslandshótel með rausnarlegum hætti við rekstur Samtakanna en einnig gefur samtarfið okkur kost á að nýta þjónustu hótelkeðjunnar, t.d. með viðburðum. Aðalfundur og landsþing Samtakanna ’78 fer til að mynda fram í glæsilegum ráðstefnusal Íslandshótela á Grand Hótel.
„Það er okkur sannur heiður að fá Íslandshótel sem fyrsta aðalbakhjarl nýrrar Regnbogafjölskyldu. Fyrirtækið hefur sýnt stuðning sinn við hinsegin samfélagið í verki, bæði með því að vera fyrsta hótelkeðjan til að hljóta Hinsegin vottun og fyrsta fyrirtækið til að ganga í Regnbogafjölskylduna.“
Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78
Við erum afar stolt af því að ganga til þessa samstarfs við Samtökin ’78. Fyrir okkur snýst þetta ekki eingöngu um stuðning við eitt verkefni, heldur um að taka skýra afstöðu með jöfnum tækifærum, virðingu og réttinum til að vera maður sjálfur. Við viljum leggja okkar af mörkum til að styðja við réttindi og velferð hinsegin fólks.“
Davíð T. Ólafsson, forstjóri Íslandshótela
Samtökin ’78 þakka Íslandshótelum traustið og hlakka mikið til samstarfsins. Það er von okkar að fleiri öflug fyrirtæki taki af skarið og verði hluti af nýrri og öflugri Regnbogafjölskyldu Samtakanna ‘78.


