Skip to main content
AuglýsingFélagsstarfFræðslustarfTilkynning

Vilt þú verða jafningjafræðari fyrir Samtökin ’78?

By 8. ágúst, 2017nóvember 15th, 2021No Comments

Jafningjafræðsla Samtakanna ’78 er einn af grunnþáttum starfsemi Samtakanna. Þetta er hópur af sjálfboðaliðum á aldrinum 16-30 sem fræða ungmenni landsins um hinsegin veruleikann, að mestu í unglingadeildum grunnskóla en einnig í framhaldsskólum og á öðrum vettvangi.

Ef þú hefur áhuga á að ganga í raðir jafningjafræðara Samtakanna þá vinsamlegast fylltu út umsókn.

Haft verður samband við öll þau sem sækja um. Bæði nýir fræðarar og þau sem hafa verið með áður eru beðin um að fylla út þetta skjal. 

ATH: Nauðsynlegt er að komast á undirbúningshelgi jafningjafræðslunnar 26-27 ágúst 2017 til þess að geta verið með í vetur.

Ef það eru einhverjar spurningar vinsamlegast hafið samband við fræðslustýru: fraedsla@samtokin78.is.

Við hlökkum til að heyra frá þér!

Leave a Reply