Skip to main content
Fréttir

Nýársball í Þjóðleikhúskjallaranum!

By 15. desember, 2004No Comments

Tilkynningar Í ár efna Samtökin ?78 til áramótafagnaðar í Þjóðleikhúskjallaranum. Húsið opnar kl. 01:00 á nýársnótt og stendur gleðin fram á morgun.

Plötusnúðar: DJ Skjöldur ? DJ Rósa ? DJ Andrea Jóns

Forsala aðgöngumiða hefst á Opnu húsi fimmtudaginn 16. desember. Tryggið ykkur miða tímanlega!

Miðaverð í forsölu: 1000 kr. fyrir félagsmenn og 1500 kr. fyrir aðra.
Miðaverð á nýársnótt: 1300 kr. fyrir félagsmenn og 1800 kr. fyrir aðra.
ATH. Þeir sem greiða félagsgjald í Samtökin ?78 fyrir næsta ár fá ókeypis miða á ballið í kaupbæti! *

Í fyrra varð svo sannarlega húsfyllir. Nú endurtökum við leikinn á enn stærri stað!

Allir velkomnir!

* Tilboðið gildir fyrir alla þá sem greiða fullt félagsgjald í Samtökin ´78 fyrir mánaðarmót. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir! Greiða má á Opnu húsi á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 20:00-23:30, á laugardögum frá kl. 21:00-01:00 og á skrifstofutíma félagsins. Athygli er vakin á því að ekki verður hægt að greiða félagsgjöld á ballinu sjálfu.

Leave a Reply