Skip to main content
AðalfundurAuglýsingFréttirStjórnTrúnaðarráð

Kjörnefnd kallar eftir framboðum

By 6. febrúar, 2017nóvember 15th, 2021No Comments

Eins og tilkynnt hefur verið verður aðalfundur Samtakanna ’78 fyrir starfsárið 2017-18 haldinn 18. mars næstkomandi í húsnæði Samtakanna ‘78 við Suðurgötu 3, 101 Reykjavík . Rétt til fundarsetu hafa allir skráðir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld ársins 2017. Hægt er að skrá sig sem félaga hér.

Að þessu tilefni kallar kjörnefnd Samtakanna ’78 eftir framboðum til stjórnar, trúnaðarráðs og skoðunarmanna reikninga, auk ábendinga um áhugasama frambjóðendur. Frambjóðendur vinsamlega sendi framboð þar sem tilgreint er hvaða embætti frambjóðandi sækist eftir, sem og varaframboð ef áhugi er á slíku (sjá hér að neðan).

Eftirfarandi embætti eru í stjórn Samtakanna ‘78: Formaður, varaformaður, alþjóðafulltrúi, gjaldkeri, ritari, og 2 meðstjórnendur.

Trúnaðarráð er skipað 10 einstaklingum sem í sameiningu velja sér formann og áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundi að loknum aðalfundi.

Við óskum eftir því að frambjóðendur svari eftirfarandi spurningum:

1. Spurningar fyrir alla frambjóðendur

1.1 Nafn og aldur

1.2 Fyrri reynsla (t.d. Menntun, starf, félagsstörf og þess háttar)

1.3 Stutt samantekt á núverandi högum (m.a. fjölskylduhagir og annað sem frambjóðandi vill taka fram)

1.4 Fyrri verkefni/störf innan Samtakanna ’78

2. Spurningar fyrir frambjóðendur í stjórn

2.1 Hvert er mat þitt á stöðu Samtakanna ’78 í dag og þeim verkefnum sem unnið hefur verið að á síðustu árum?

2.2 Hver er þín sýn á starf Samtakanna ’78 næstu 2-3 ár og á hvaða sviði telur þú þig geta lagt mest af mörkum? (Hvaða verkefnum þarf að sinna, hverju hefur þú helst áhuga á að vinna að sem stjórnarmeðlimur, í hvaða aðgerðir þarf að ráðast og svo framvegis)

3. Spurningar fyrir frambjóðendur í trúnaðarráð

3.1 Hvernig sérð þú fyrir þér áherslur trúnaðarráðs starfsárið 2017-2018 og á hvaða sviði gagnast áhugi þinn, þekking og reynsla best? (Helstu verkefni, aðgerðir, o.s.frv.)

3.2 Annað sem þú vilt koma á framfæri?

 

Frambjóðendur eru hvattir til að senda mynd meðferðis framboði sínu.

Samkvæmt grein 3.3 í lögum Samtakanna ‘78 getur frambjóðandi tilgreint varaframboð sem tekur gildi nái viðkomandi ekki kjöri í tilsett embætti. Framboð (og varaframboð sé þess óskað) skulu berast á netfangið kjornefnd@samtokin78.isí síðasta lagi 4. mars.

Til þess að tryggja fjölbreyttan hóp frambjóðenda, í samræmi við þann fjölbreytta hóp sem félagsmenn Samtakanna ‘78 eru, hvetur kjörnefnd sérstaklega félagsmenn af öllum aldri, kynþáttum, uppruna, líkamsgetu, menntun og bakgrunni til þess að bjóða sig fram í komandi kosningum.

Í kjörnefnd sitja:

• Alexander Björn Gunnarsson

• Ásta Ósk Hlöðversdóttir

• Svandís Anna Sigurðardóttir

 

Nánari upplýsingar um störf stjórnar og trúnaðarráðs má finna í lögum Samtakanna ’78. Einnig má hafa samband við kjörnefnd á ofangreindu netfangi. Verklagsreglur kjörnefndar um framkvæmd kosninganna má nálgast hér.

Leave a Reply