Skip to main content
Fréttir

BLAK Í VETUR MEÐ KMK

By 4. september, 2008No Comments

Blaklið KMK er að hefja sitt sjöunda tímabil og munu æfingarnar í vetur verða á miðvikudögum kl. 21:20-22:30, í Árbæjarskóla. Til viðbótar við æfingarnar munum við svo stefna á þau fjölmörgu hraðmót sem verða í boði út um allt land í allan vetur og endum svo á hinu fjölmenna Öldungamóti á Seyðisfirði í maí.

Þótt nýjar blakkonur séu ávallt velkomnar á æfingar yfir veturinn þá ætlum við að hafa september sem sérstakan nýliðamánuð. Þá hvetjum við áhugasamar stelpur/konur alveg sérstaklega til að mæta og læra blak alveg frá grunni. Að þeim mánuði loknum verður sérstakt nýliða húllumhæ

Á bloggsíðu liðsins, http://kmk.blogcentral.is/, svo finna allar upplýsingar um liðið og þar munu einnig allar fréttir og tilkynningar birtast. Á síðunni er núna hægt að skoða myndband sem sýnir brot af því sem liðið hefur haft fyrir stafni undanfarin ár.

Nánari upplýsingar verða fúslega veittar hjá Kristínu s: 898-3060, Fríðu s: 866-8246 og
Kollu s: 615-1579

Verið endilega með frá byrjun!

Blaklið KMK

Leave a Reply