Skip to main content
Fréttir

DAGSKRÁ FELLUR NIÐUR VEGNA VEIKINDA

By 17. nóvember, 2006No Comments

 

Vegna veikinda verður því miður að fella niður dagskránna um lesbískar vampírur og aðrar óknytta konur sem vera átti í félagsmiðstöð Samtakanna ’78 í kvöld, laugardag. Dagskráin verður auglýst aftur síðar.
 
 

————————————————————————-

 

NÆSTU VIÐBURÐIR

 

 

Fimmtudagurinn 7. desember

Jólabingó

Hið árlega og sívinsæla fjölskyldujólabingó Samtakanna ‘78

Meðal verðlauna fullkomið Jóla-kit

Allt til jólanna á einum stað!

Mætið tímanlega!!

Dagskráin hefst kl. 20:30

 

 

Laugardagurinn 9. desember

KMK Jólabókakvöld

Hið árlega jólabókakvöld KMK þar sem konur lesa úr skáldskap sínum fyrir konur.

Dagskráin hefst kl. 21 

 

 

Fimmtudagurinn 14. desember

Jólabókakvöld

Rithöfundar koma í heimsókn og lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum

í öllum regnbogans litum.

Dagskráin hefst kl. 21

 

  

Fimmtudagur 28 desember

Hörpuleikarinn & homminn

Páll Óskar og Móníka halda sína árlegu jólatónleika

og leika nýleg frumsamin lög og önnur eldri af sívinsældarlistanum.

Dagskráin hefst kl. 21

 

 

Fimmtudagurinn 11. janúar

Bluesgyðjan Andrea

Janúartónleikar hinn sívinsælu Andreu Gylfadóttur

sem syngur vinsæl lög við undirleik Eðvars Lárussonar gítarleikara

Dagskráin hefst kl. 21

 

Dagskráin fer fram í Regnbogasal Samtakanna ’78

Laugavegi 3, nema þar sem annað er tekið fram.

 

Aðgangur er ókeypis að öllum dagskrárliðum en Samtökin ´78

taka við samskotum þessi kvöld

 

Leave a Reply