FréttirTilkynning

Söguleg samstaða um jafnrétti og fjölbreytileika á vinnumarkaði

By 7. ágúst, 2026ágúst 17th, 2026No Comments

Söguleg samstaða: Viljayfirlýsing um samstarf í þágu jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar á vinnumarkaði undirrituð

Stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins og Samtökin ’78 sameina krafta sína til að efla jafnrétti og öryggi hinsegin fólks á vinnumarkaði. Félags- og húsnæðismálaráðherra, fulltrúi dómsmálaráðherra og forystufólk Alþýðusambands Íslands (ASÍ), BHM, BSRB, Kennarasambands Íslands (KÍ), Samtaka atvinnulífsins (SA) og Samtakanna ’78 undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um aukið samstarf í þágu jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar á íslenskum vinnumarkaði. Með undirrituninni skuldbinda aðilar sig til að vinna markvisst að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði.

Samtökin ’78 eru tilbúin!

Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78: „Þegar við tölum um öryggi hugsum við oft um hjálma eða brunavarnir. En rannsóknir og íslensk löggjöf minna okkur á að vinnustaðir bera líka ábyrgð á sálfélagslegu öryggi – að starfsfólk upplifi virðingu, jafna meðferð og öruggt starfsumhverfi. Það er grunnurinn að góðri vinnustaðamenningu. Hinsegin fólk þarf oftar en aðrir að meta hvort það sé öruggt að vera opið um sjálft sig í vinnunni. Þegar það tekst verður vinnustaðurinn betri fyrir alla. Reynsla Íslandshótela sýnir að starfsmannavelta hafi minnkað og starfsánægja hafi aukist eftir að fyrirtækið gekk í gegnum Hinsegin vottun hjá Samtökunum ’78. Samtökin ’78 eru klár í að ganga til verka svo hægt sé að tryggja að öll hafi sömu möguleika á að tilheyra.“

Öruggur, inngildandi og fordómalaus vinnumarkaður

Rannsóknir sýna að þrátt fyrir skýran lagaramma um jafna meðferð upplifir hinsegin fólk enn í auknum mæli mismunun, fordóma og verri líðan á vinnumarkaði en aðrir hópar. Sérstaklega á það við um trans- og kynsegin fólk.
Markmið samstarfsins er að efla þekkingu, stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks og þróa úrræði sem styðja við inngildandi starfsumhverfi. Aðilar eru sammála um að jafnrétti og fjölbreytileiki eru mannréttindi og stuðla að betri árangri vinnustaða og sterkara samfélagi.

Aðgerðahópur mun leiða verkefnið áfram

Sem hluti af samstarfinu verður stofnaður aðgerðahópur sem fær það hlutverk að vinna að fræðsluefni, aðgerðum og rannsóknum.
Hópurinn mun byggja starf sitt á rannsóknum og greiningum á stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði, sem og þeirri reynslu og þekkingu sem safnast hefur í gegnum Hinsegin vottun Samtakanna ’78 og leiðbeiningar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um inngildandi vinnustaði.

Mikilvægt skref í átt að inngildandi vinnumarkaði

Aðilar viljayfirlýsingarinnar telja að aukið jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding skili ávinningi fyrir starfsfólk, vinnustaði og samfélagið allt. Með undirrituninni er stigið mikilvægt skref í átt að vinnumarkaði þar sem öll njóta virðingar og öryggis og sömu tækifæra.

Undirritendur viljayfirlýsingarinnar eru:

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrir hönd dómsmálaráðherra
Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ’78
Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands
Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB