Skip to main content
Fréttir

Golfmót KMK

By 11. júlí, 2005No Comments

Tilkynningar

í Hveragerði 27. ágúst

Leikið eftir Texas Scramble reglum 9 holur. Fyrsta högg slegið kl. 13.00 sem sagt mæting í síðasta lagi 12.30. Verð: 1500kr, innifalið golfmót, súpa og brauð. Spilarar paraðir saman af skipuleggjendum = vanur/óvanur saman.

Texas scramble – leikfyrirkomulag
Tveir og Tveir spila saman í liði og þeir slá sitthvorn boltann. Eftir upphafshögg er metið hvor boltinn er betur staðsettur og færir hinn sig þá til hans. Sá sem sló betri boltanum merkir staðinn með tíi ca 5 cm frá boltanum og slær síðan annað högg. Hinn stillir svo sínum bolta upp á sama stað og slær sitt annað högg. Svona gengur þetta þar til annar kemur boltanum ofan í holuna. Sömu reglur gilda inni á grínunum. Leikmennirnir skrá semsagt bara eitt skor saman.

-KMK

Leave a Reply