Skip to main content
Fréttir

Fjölbreytt dagskrá í Regnbogasalnum í haust

By 18. október, 2005No Comments

Frettir Um þessar mundir er vetrardagskrá að hefjast í Regnbogasal Samtakanna´78, en á dagskrá í vetur er afar fjölbreytt og spennandi efni í tali og tónum.

Fyrst á svið á þessum vetri er Andrea Gylfadóttir en hún syngur vinsæl lög úr ýmsum áttum við við undirleik Eðvarðs Lárussonar gítarleikara. Andrea hefur komið fram í Regnbogasal nánast árlega frá því að Samtökin ´78 hófu starfsemi sína á Laugavegi 3 og þar hefur löngum verið fullt út úr dyrum á tónleikum hennar

Tónleikar Andreu og Edda verða fimmtudagskvöldið 20. október og hejast kl. 22

Fimmtudagsfjör í Regnbogasal

27. október
Gestur ? Síðasta máltíðin
Sýnishorn úr íslenskri óperettu um afbrýði og hefndarhug.
Hinsegin átaka- og örlagasaga úr Grafarholti.
Gautur G. Gunnlaugsson, Gunnar Kristmannsson, Hrólfur Sæmundsson.
Raúl Jiménez, píanóleikari. Þröstur Guðbjartsson, leikstjóri
Dagskráin hefst kl. 22

3. nóvember
?Ástin á elleftu stundu?
Bjarni Snæbjörnsson og Viðar Eggertsson
flytja ástarljóð karla til karla
Dagskráin hefst kl. 22:30

10. nóvember
Homminn og hörpuleikarinn
Páll Óskar og Móníka
flytja ný frumsamin lög og gömul af vinsældalistanum
Dagskráin hefst kl. 22

17. nóvember
?Lifi sauðféð í drottins náð?
Ingrid Jónsdóttir, Jón St. Kristjánsson og Viðar Eggertsson
flytja íslensk átthagaljóð með laufléttu erótísku ívafi
Dagskráin hefst kl. 22

24. nóvember
?Ég um þig?
Kristjana Stefánsdóttir djasssöngkona
syngur lög af nýútkominni geislaplötu sinni,
lög sem nutu mikilla vinsælda á tímum nýbylgju og rómantíkur
við undirleik Agnars Már Magnússonar, píanóleikara
Dagskráin hefst kl. 22

1. desember
Listin að vera lesbía
Jódís Skúladóttir syngur eigin lög
Dagskráin hefst kl. 22

8. desember
Jólabókakvöld í Regnbogasal
Rithöfundar koma í heimsókn og lesa upp
úr nýútkomnum verkum sínum
Dagskráin hefst kl. 21:30

11. desember
Jólabingó
Dagskráin hefst kl. 20:30
Hið árlega og sívinsæla fjölskyldubingó
Síðast var aðalvinningurinn 50.000 kr. virði
Varla verður hann minni í ár!

Athugið breytilegan dagskrártíma
frá viku til viku

Aðgangur er ókeypis að öllum dagskrárliðum
en Samtökin ´78 þiggja samskot þessi kvöld
og hvetja gesti til að láta styrk af hendi rakna!

Lítið við í Regnbogasal í vetur.
Á dagskrá fimmtudaganna er alltaf
blandað góðgæti í anda fröken Rósu.

Leave a Reply