Skip to main content
Fréttir

MINNINGARGUÐSÞJÓNUSTA

By 25. maí, 2007No Comments

Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin sunnudaginn 27. maí næstkomandi. Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst. Að vanda fer athöfnin fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14 Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin sunnudaginn 27. maí næstkomandi. Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.

Að vanda fer athöfnin fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14.00.

Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day.

Séra Hjörtur Magni Jóhannesson leiðir guðsþjónustuna.

Formaður Alnæmissamtakanna, Ingi Rafn Hauksson, flytur ávarp.

Tónlist: Söngdívan Margrét Pálmadóttir mætir með söngfugla sína, þau munu gleðja gesti og leiða söng. Söngtextar liggja frammi.

Ljóðalestur: Viðar Eggertsson flytur ljóðadagskrá. Þýdd ljóð og innlend.

Boðið verður upp á veitingar í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að lokinni messu.

Mætum vel og stundvíslega!

 

-Alnæmissamtökin

 

 

 

Leave a Reply