Skip to main content
Fréttir

Lettland – Samkynhneigður prestur sviptur embætti

By 3. júní, 2002No Comments

Frettir Janis Vanags, erkibiskup í Lettlandi, hefur svipt einn af prestum lúthersku kirkjunnar þar í landi embætti fyrir að tjá víðsýna og jákvæða afstöðu til samkynhneigðra að því er fulltrúi kirkjunnar lýsti yfir 24. maí. sl. Í yfirlýsingu sem Mara Grigola, ritari erkibiskups sendi frá sér, segir að hinn 36 ára gamli prestur, Maris Sants, hafi látið opinberlega frá sér fara ?viðhorf sem stríða gegn lútherskri kenningu.? Einnig segir þar að ?menn, sem líta svo á að samkynhneigð sé sjálfsögð og eðlileg, geti ekki starfað innan evangelísk-lúthersku kirkjunnar í Lettlandi.? Maris Sants er þekktur í heimalandi sínu fyrir stuðning og þjónustu við HIV-smitaða og alnæmissjúka.

Séra Maris Sants sagði Agence France-Presse að brottrekstur hans úr embætti, sem varð eftir að hann í viðtali við Radio Free Europe/Radio Liberty ræddi m.a. um eigin samkynhneigð, hafi komið sér í opna skjöldu. ?Það er venja í okkar kirkju að reka starfsmenn hennar en sniðganga skoðanaskipti. Kirkjan er ekki aðeins íhaldsöm heldur herðir hún núna kosti manna,? sagði Sants og bætti við að hann hefði sætt ámæli frá yfirvöldum kirkjunnar fyrir að þjónusta þá sem þjást af völdum alnæmis.

Á þá að viðurkenna rétt barnaníðinga?

Nýlega ritaði erkibiskupinn, Janis Vanags, grein í bók sem hið hægri sinnaða forlag Vieda gaf út nýlega og nefnist Lettland án samkynhneigðar. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur bók þessa nú til rannsóknar eftir að henni bárust ákærur þess efnis að efni hennar feli í sér brot á meiðyrðalöggjöf ríkisins. Eftir Vanags erkibiskupi eru einnig höfð eftirfarandi ummæli í einu af dagblöðum landsins: ?Nú þegar samkynhneigðir njóta viðurkenningar sem minnihlutahópur, má hugsa sér að barnaníðingar komi næst á eftir sem viðurkenndur minnihlutahópur.?

Eftir að Janis Vanags varð erkibiskup evangelísk-lúthersku kirkjunnar í Lettlandi árið 1993 hefur hann staðfastlega neitað að vígja konur til prests þó svo að meirihluti lúthersku kirkjunnar styðji eindregið að slíkt verði gert.

Samtökin ´78 mótmæla harðlega þeirri aðför að mannréttindum samkynhneigðra sem forysta lúthersku kirkjunnar í Lettlandi hefur hér gerst sek um og hvetja íslensk yfirvöld og almenning til að gera hið sama.

www.advocate.com

Leave a Reply