Skip to main content
search
Fréttir

SAMKYNHNEIGÐ, ÁSTARHNEIGÐ

By 12. desember, 2005No Comments

Biblían var áður fyrr notuð sem vopn gegn kosningarétti kvenna, því talið var að konur ættu að þegja á samkundum. Í dag má nota það gegn okkur að í lögum Móse er sagt eitthvað um samræði sem getnaðarathöfn. Ef fólk ætlar að nota slíkt gegn okkur þá finnst mér að það væri heiðarlegast að stíga skrefið til fulls – eins og páfinn í Vatíkaninu – og banna getnaðarvarnir og fóstureyðingar og samræði, nema getnaður standi fyrir dyrum. Samkynhneigð er ekki afmörkuð við kynlífsathafnir, heldur ástarhneigð og möguleika fólks af sama kyni til að lifa saman. Snorri í Betel og Gunnar í Krossinum telja að það þurfi að lækna fólk og frelsa það frá sjálfu sér. Samkynhneigð hefur alltaf verið til í öllum þjóðfélögum. Hitler reyndi að útrýma samkynhneigðum í gasklefum og Stalín gekk einnig hart að þeim. Samkynhneigðir voru ofsóttir á McCarthy-tímabilinu í Bandaríkjunum, en það hafði lítil áhrif því að samkynhneigðir lifðu af allar þessar ofsóknir. Á sama hátt munum við lifa menn eins og Gunnar í Krossinum og Snorra í Betel.

Margrét Pála Ólafsdóttir í Helgarpóstinum 1996.

Leave a Reply