Skip to main content
Fréttir

Viltu vera með atriði í gleðigöngunni?

By 21. júlí, 2005No Comments

Tilkynningar Hinsegin dagar nálgast og hinn 6. ágúst förum við í gleðigöngu niður Laugaveg á útihátíð í Lækjargötu.

Atriðum í gleðigöngunni hefur fjölgað ár frá ári og mörg hver hafa verið einstaklega glæsileg. Til þess að setja upp gott atriði er mikilvægt að hugsa málin með fyrirvara. Góð atriði þurfa ekki að kosta mikla peninga. Gott ímyndunarafl og liðsstyrkur vina og vandamanna dugar oftast nær. Á verkstæði Hinsegin daga geta allir sem eru að setja saman atriði saumað og smíðað og nýtt sér það skraut sem er á boðstólum hverju sinni. Þau sem geta lagt til verkfæri, saumavélar og svo framvegis, vinsamlegast hafið samband við göngustjóra.

Þátttakendur sem ætla að vera með formleg atriði í göngunni verða að tilkynna það til göngustjóra sem allra fyrst. Göngustjórar í ár eru Búbba (s. 865 3390) og Katrín (s. 867 2399).

-Hinsegin dagar í Reykjavík 2005

Leave a Reply