Skip to main content
Fréttir

Sumarútilega KMK

By 11. júlí, 2005No Comments

Tilkynningar

Hin árlega sumarútilega KMK verður helgina 15. -17. júlí

Í ár verður farið að Þórisstöðum í Svínadal. Tjaldstæðið er stórt og gott með fullkomna hreinlætisaðtöðu. Nóttin kostar 500kr/mann og er greitt fyrir 12ára og eldri . Á eða í nánd við svæðið er: 9 holu golfvöllur og 9 holu púttvöllur, veiðivatn, sundlaug, leiksvæði með ýmsum leiktækjum, fótboltavöllur og eflaust eitthvað fleira.

Þórisstaðir standa við Þórisstaðavatn í Svínadal, stundum einnig nefnt Glammastaðavatn. Þangað er um 4 km. akstur frá Ferstiklu og um 70 km. frá Reykjavík.

Mætum allar hressar og kátar með sól í hjarta!

-KMK

Leave a Reply