Skip to main content
Fréttir

Háskóli Íslands – Hinsegin líf – Hinsegin fræði

By 10. október, 2002No Comments

Frettir Á vormisseri 2003 efnir félagsvísindadeild Háskóla Íslands til námskeiðs sem nefnist

Hinsegin Líf – Hinsegin fræði

Kennarar eru þær Rannveig Traustadóttir, dósent, og Þorgerður Einarsdóttir, lektor.

Í námskeiðinu verður ljósi varpað á sögu samkynhneigðra, hreyfingu þeirra og baráttu í íslenskum samtíma og hún sett í alþjóðlegt samhengi. Fjallað verður um Stonewall-átökin, sem marka upphaf frelsishreyfingar samkynhneigðra 1969 og aðrar mikilvægar vörður í réttindabaráttunni. Menningarlegir og félagslegir þætti eins og sjálfsmynd og sýnileiki verða skoðaðir, kynntar kenningar um mótun kynferðis og kyngerva (sex og gender) og kyngervisusla (gender trouble). Þá verður sjónum beint að lagaumhverfi og réttarstöðu samkynhneigðra, svo sem lögum um staðfesta samvist og ættleiðingar. Skoðað verður hvernig ýmsar stofnanir samfélagsins taka á samkynhneigð, svo sem skólakerfið og kirkjan. Þá verður fjallað um fjölskyldur samkynhneigðra og loks verður umræðan um HIV og alnæmi skoðuð.

Námskeiðið verður í formi fyrirlestra og málstofu.

Fjölmargir gestafyrirlesarar taka þátt í námskeiðinu.

Leave a Reply