Málþingið er haldið að frumkvæði Félagsráðgjafafélags Íslands og Félags stjúpfjölskyldna og í samvinnu við Rannsóknarsetur í barna og fjölskylduvernd og Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Heimili og skóla, Þjóðkirkjuna, Mentor og Samtökin 78.
Málþingið er haldið í Öskju, HÍ þann 22. febrúar kl. 14:00 – 17:30.
Skráning fer fram á netfanginu stjuptengsl@stjuptengsl.is eða felagsradgjof@felagsradgjof.is Vinsamlegast skráið nafn, vinnustað, greiðanda og tölvupóstfang. Þátttökugjald er 1500 kr og greiðist inn á reikning 120-26-9101 kt. 701205-2190 eða við komu.
Dagskrá:
13:30 -14:00 | Skráning | |
14:00 -14:10 | Ég fékk stjúppabba 4 ára | Júlía Sæmundsdóttir félagsráðgjafanemi, Mentor, Félagi stjúpfjölskyldna |
14:15 -14:30 | Stjúptengsl – vannýtt auðlind? | Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA og formaður Félags stjúpfjölskyldna og ritstjóri www.stjuptengsl.is |
14:30 -14:45 | Tilfinningalegur rússíbani – faðir minn með börn á tveimur heimilum | Páll Ólafsson félagsráðgjafi, MA og formaður Félagsráðgjafafélags Íslands |
14:45 -15:05 | Frá Reynslusögum til rannsókna – og þróast hönd í hönd | Dr. Sigrún Júlíusdóttir félagsráðgjafi og prófessor við HÍ |
20 mín hlé | ||
15:25 – 15:40 | Stjúpfjölskyldur í tölum | Ólöf Garðarsdóttir deildarstjóri Mannfjöldadeildar Hagstofunnar |
15:40 – 16:00 | „Ég held að pabbi hafi verið ættleiddur“ | Björk Erlendsdóttir skólafélagsráðgjafi og MSW nemi |
16:00 – 16:20 | Heimili og skóli | Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnastjóri |
Hinsegin stjúptengls | Guðbjörg Ottósdóttir félagsráðgjafi | |
Neskirkja | Sigurður Árni Þórðarson prestur | |
16:20 – 17:20 | Pallborð, Niðurstöður kynntar og ráðstefnuslit | Ágúst Ólafur Ágústson alþingismaður ásamt framsögumönnum. Álfgeir Kristjánsson, aðjúnkt Kennslu- og lýðheilsudeildar HR |
Nánari upplýsingar veitir Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi í síma 6929101