Föstudagskvöldið 15. Febrúar býður KMK upp á nuddnámskeið í húsnæði Samtakanna ´78 á Laugavegi 3. Leiðbeinendur eru nuddararnir Helga Olgeirsdóttir & Hrafnhildur Eiríksdóttir.
Þær sem kaupa sér Góumiða fá frían bjór (einn bjór á hvern keyptan miða á meðan birgðir endast!). Og allar þær fjölmörgu konur sem hafa nú þegar keypt sér miða er boðið að koma við og fá sér bjór niður í Samtökum á föstudagskvöldið! Við tökum á móti peningum og kortum!
Húsið opnar kl. 20:30.
Námskeið hefst kl. 21:00.
Námskeiðinu lýkur rétt fyrir kl. 23:00.
Námskeiðsgjald er AÐEINS 1,000 krónur.
Hægt er að skrá sig á kmk@kmk.is
Sjáumst á föstudagskvöld!!
-KMK