Skip to main content
Fréttir

List í Regnbogasal – Skjöldur Eyfjörð sýnir verk sín

By 14. september, 2005No Comments

Tilkynningar Fimmtudaginn 15. september opnaði Skjöldur Eyfjörð myndlistarsýningu í Regnbogasal Samtakanna ´78, Laugavegi 3. Sýningin kallast Töfragarðurinn og mun standa í einn mánuð. Þetta er önnur myndlistarsýningin sem Skjöldur heldur um dagana, en í þetta sinn sýnir hann tuttugu og eina mynd sem allar eru til sölu. Sýningin var áður á Thorvaldsenbar. Sýningin hefst á opnu húsi.

Skjöldur hefur málað eins lengi og hann man eftir sér. ?Ef ég er ekki að mála sjálfan mig eða aðra, þá er ég að mála myndir eða jafnvel hár, því að þetta er það sem ég vil gera.? Og um sýningu sína segir Skjöldur: ?Blóm og náttúra eru mér ofarlega í huga þessa stundina. Ég er eitthvað svo rómantískur, enda ástfanginn, og þetta er angi af því, eintóm rómantík, blóm, gleði og fegurð.?

Leave a Reply