Skip to main content
Fréttir

Fundur hjá ÁST: – Gestur dagsins verður Ragnheiður Sverrisdóttir djákni

Tilkynningar Næsti fundur hjá ÁST verður sunnudaginn 6. mars klukkan 17.00 í félagsheimili Samtakanna ´78, Laugavegi 3. Sérstakur gestur dagsins verður Ragnheiður Sverrisdóttir djákni. Erindi hennar nefnist: ?Getur reiði verið til góðs??.

Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf er ekki bara fyrir þá er játa kristna trú heldur alla sem áhuga hafa á trúmálum, hverrar trúar sem þeir eru. Við hvetjum alla sem áhuga hafa að koma á fundi okkar og fræða okkur um sína trú og sína afstöðu til hennar og annarra trúarbragða.

-Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf – ÁST

Leave a Reply