Skip to main content
Fréttir

Alnæmissamtökin: – Minningarguðsþjónusta

By 25. maí, 2005No Comments

Tilkynningar Minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin sunnudaginn 29. maí næstkomandi. Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.

Að vanda fer messan fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14.00.

Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day.

Séra Hjörtur Magni Jóhannesson mun leiða guðsþjónustuna.
Formaður Alnæmissamtakanna, Ingi Rafn Hauksson, flytur ávarp.
Tónlistarflutningur verður í höndum Arnars Þórs Viðarssonar og Agnars Más Magnússonar.
Linda Vilhjálmsdóttir skáld flytur eigin ljóð.

Boðið verður upp á veitingar í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að lokinni messu. Mætum vel og stundvíslega.

Alnæmissamtökin á Íslandi

Leave a Reply