Skip to main content
Fréttir

Foreldrar og aðstandendur lesbía og homma – Styðjum, fræðum og styrkjum okkur sjálf

By 8. september, 2003No Comments

Tilkynningar Foreldrar og aðrir aðstandendur lesbía og homma hittast á fundum annan og fjórða miðvikudag í mánuði yfir veturinn.

Sjöundi fundur vetrarins verður miðvikudaginn 10. desember í menningar- og félagsmiðstöð Samtakanna ´78, Laugarveg 3, 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 20:30 og stendur í klukkutíma. Ef fólk hefur þörf fyrir rólega stund og spjall fyrir fundinn er alltaf einhver úr okkar hópi til staðar frá kl. 20.

Markmið okkar er að hittast og deila hvert með öðru reynslu okkar, styrk og vonum. Við leggjum rækt við okkur sjálf og teljum að með því séum við betur aflögufær til að vera bakhjarlar við ástvini okkar.

Við vinnum að fræðslu, bæði opnum fundum og einnig innan okkar hóps. Markmið okkar er að efla umræðu í okkar nánasta umhverfi og úti í samfélaginu og auka með því skilning og þekkingu á því að samkynhneigð er fjölskyldumál.

Velferð samkynhneigðra ástvina okkar varðar okkur öll.

Leave a Reply