Skip to main content
Fréttir

ST STYRMIR: SUNDÆFINGAR

By 4. nóvember, 2008No Comments

Sundhópur St. Styrmis hittist nú öll mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 20 í Laugardalslaug. Markmið hópsins er að koma sér í gott sundform, jafnt til skemmtunar eða sem undirbúning fyrir sundkeppni OutGames í Kaupmannahöfn næsta sumar. Æfingarnar eru skipulagðar eftir getu og vilja þeirra sem mæta. Það kostar ekkert að taka þátt annað en að borga sig inn í sundlaugina.

Nýliðar eru beðnir um að hafa samband við Hafstein Þórólfsson umsjónarmanns hópsins áður en þeir mæta í fyrsta skipti. Hafsteinn svarar fyrirspurnum í 699-7277eða tölvupóstfangi haffit@gmail.com

Leave a Reply