Skip to main content
Fréttir

SÖGUGANGA MEÐ FELIX OG BALDRI

By 4. júlí, 2007No Comments

Hýra Reykjavík

Sögufrægir staðir samkynhneigðra í miðborginni

Í sumar hefur verið boðið upp á sögugöngu um staði sem tengjast lífi lesbía og homma í miðborg Reykjavíkur. Fjallað er um menningu og líf einstakra samkynhneigðra Reykvíkinga allt frá lokum 19. aldar. Næturlífi, pólitík, bókmenntum og tónlist sem tengjast samkynhneigðum í borginni eri gerð skil og rifjaðir upp sögufrægir atburðir í lífi þeirra. Menning lesbía og homma í Reykjavík hefur verið hulin flestum hingað til, en fjölda markverðra staða er að finna í miðborginni sem tengjast lífi samkynhneigðra. Markmið gönguferðanna er að varpa hulunni af þessum merkilega menningarkima borgarinnar. Reykjavík er hýrari en margur heldur!

Fyrirmyndin af göngunni er sótt til stórborga erlendis þar sem víða er boðið upp á slíka leiðsögn. Leiðsögn fer ýmist fram á ensku og íslensku og ferðin tekur rúmlega klukkustund.

Fimmtudaginn 9. ágúst verður sérstök söguganga á íslensku í tilefni Hinsegin daga. Safnast verður saman á Café Cozy í Austurstræti og lagt af stað kl. 20. Skipuleggjendur og leiðsögumenn eru Felix Bergsson, leikari og Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur. Aðeins kostar 1.000 kr. í gönguna. Hægt er að fá nánari upplýsingar og panta sögugöngu hjá Baldri í síma 896 0010.

Hinsegin dagar í Reykjavík

 

Leave a Reply