Skip to main content
search
Fréttir

ÁRAMÓTADANSLEIKUR SAMTAKANNA ´78

By 6. október, 2006No Comments

Í ár efna Samtökin ’78 til áramótafagnaðar í Versölum, Hallveigarstíg 1. Húsið opnað kl. 01:00 á nýársnótt og stendur gleðin fram undir morgun.

 DJ Skjöldur heldur uppi fjörinu!!!

Forsala aðgöngumiða hefst á Opnu húsi fimmtudaginn 21. desember. Selt er á bókasafninu

Miðaverð í forsölu: 1200 kr. fyrir félagsmenn og 1600 kr. fyrir aðra.

Miðaverð við innganginn á nýársnótt: 1600 kr. fyrir félagsmenn og 2000 kr. fyrir aðra.

ATH! Þau sem greiða fullt félagsgjald í Samtökin ’78 fyrir næsta ár fá ókeypis miða á ballið í kaupbæti*
Í fyrra varð húsfyllir og frábær stemmning – nú endurtökum við leikinn á enn stærri stað!

Allir velkomnir!

* Tilboðið gildir fyrir alla sem greiða fullt félagsgjald í Samtökin ’78 fyrir áramót. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Greiða má á bókasafni á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 20-23, en einnig á skrifstofu á skrifstofutíma. 

 

Leave a Reply