Skip to main content
Fréttir

FRUMVARP UM RÉTTARSTÖÐU SAMKYNHNEIGÐRA

By 12. desember, 2005No Comments

Á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag kynnti Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra frumvarp sem lagt verður fyrir Alþingi á næstu dögum um réttarstöðu samkynhneigðra. Samkvæmt því munu samkynhneigð pör meðal annars geta fengið óvígða sambúð skráða í þjóðskrá. Þar með munu samkynhneigðir njóta sömu réttinda á við gagnkynhneigða varðandi almannatryggingar, lífeyrisréttindi, skattalega meðferð, skipti dánarbúa og fleira. Eins verða skilyrði fyrir stofnun staðfestrar samvistar rýmkuð þannig að ekki verður lengur krafist fastrar búsetu á Íslandi þegar íslenskir ríkisborgarar eiga í hlut.

Ssamkynhneigðra para til að ættleiða börn verður sú sama og gagnkynhneigðra para og áfram verður metið hverju sinni út frá hagsmunum barnsins hvort leyfi er veitt til þess í hverju tilviki. Kona í sambúð eða staðfestri samvist með annari konu öðlast jafnframt heimild til þess að gangast undir tæknifrjóvgun með gjafasæði líkt og á við um gagnkynhneigð pör. Því verður jafnframt tekið af tvímæli um að það falli undir markmið laga um töku fæðingar- og foreldraorlofs að auðvelda báðum foreldrum að vera í samvistum við barn sitt.

Frumvarpið byggir á skýrslu nefndar um réttarstöðusamkynhneigðra sem kom út í fyrra. NefNdin klofnaði í afstöðu sinni til tveggja atriða, það er til frumættleiðinga og tæknifrjóvgana. Nú er orðið ljóst að ríkisstjórnin tekur undir röksemdir þess hluta nefndarinnar sem ganga vildi lengra í jafnréttisátt og mun sú afstaða skipa Íslandi í fremstu röð ríkja í heiminum í mannréttindamálum samkynhneigðra. Frumvarpið verður nú kynnt í þingflokkum beggja stjórnarflokka og eftir það lagt fyrir Alþingi.

Leave a Reply