Skip to main content
Fréttir

Fundur hjá FAS

By 6. desember, 2004No Comments

Tilkynningar Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, FAS auglýsa:

Stuðningsfundir eru haldnir 2. og 4. hvern miðvikudag hjá foreldrum og aðstandendum homma og lesbía haustið 2004.

Næsti fundur verður 8. desember í félagsmiðstöð Samtakanna ´78, Laugarvegi 3, 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 20:30. Ef fólk hefur þörf fyrir rólega stund og spjall fyrir fundinn er alltaf einhver til staðar frá kl 20:00.

Umræðuefni fundarins er: Foreldrar með foreldrum – saman erum við sterk.

Markmið okkar er að hittast og deila hvert með öðru reynslu okkar, styrk og vonum. Við leggjum rækt við okkur sjálf og teljum að með því séum við betur aflögufær til að vera bakhjarlar við ástvini okkar.

Við vinnum að fræðslu bæði opnum fundum og einnig innan okkar hóps. Markmið okkar er að efla umræðu í okkar nánasta umhverfi og út í samfélagið, til að auka skilning og þekkingu á samkynhneigð sem er fjölskyldumál.

-FAS

Leave a Reply