Skip to main content
Fréttir

RÁÐSTEFNA Í LAUGUM

By 29. október, 2007No Comments

Laugardaginn 3. nóvember halda Samtökin ´78 ráðstefnu um lýðheilsu í ráðstefnusal Lauga í Laugardal frá kl. 13-16:30. Tilgangur ráðstefnunnar er að fjalla sérstaklega um samkynhneigða í tengslum við lýðheilsumál. Markmiðið er meðal annars að svara þeirri spurningu hvort samkynhneigðir séu sérstakur hópur sem þurfi að huga að í lýðheilsmálum Íslendinga, og ef svo er hvaða aðferðrir séu árangursríkastar til þess að ná til hópsins með tilliti til forvarna og annarar þjónustu heilbrigðiskerfisins.

Opin ráðstefna um lýðheilsu í Laugum í Laugardal kl. 13 – 17:

1) Hver er stefa heilbrigðisyfirvalda í lýðheilsumálum og forvörnum? Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.

2) Hvað er lýðheilsa? Hvaða rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi og hvað er framundan? Jakobína H. Árnadóttir aðstoðarmaður forstjóra Lýðheilsustöðvar.

3) Samkynhneigðir sem þjóðfélagshópur – Er ástæða til að huga sérstaklega að samkynhneigðum með tilliti til forvarna og annarar þjónustu heilbrigðiskerfisins? Sigrún Sveinbjörnsdóttir sálfræðingur

4) Forvarnir – hver eru langtímamarkmiðin, hafa þau verið skilgreind? Hvernig er forvörnum til samkynhneigðra háttað?

• Forvarnarstarf Alnæmissamtakanna. Ingi Rafn Hauksson formaður Alnæmissamtakanna
• Þróunin í nýsmitum HIV og annara kynsjúkdóma hér á landi og erlendis. Hvað getum við lært af nágrannalöndunum?
Haraldur Breim sóttvarnarlæknir.
• Er ástæða til að huga sérstaklega að samkynhneigðum með tilliti til meðferða og forvarna?
Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir SÁÁ
• Tilbrigði við heilbrigði .
Héðinn Unnsteinsson sérfræðingur í geðheilbrigðismálum hjá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
5) Umræður

Fundarstjóri er Frosti Jónsson formaður Samtakanna ´78. Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin.

Leave a Reply