Skip to main content
Fréttir

VILTU VERA MEÐ ATRIÐI Í GLEÐIGÖNGUNNI?

By 20. júlí, 2006No Comments

Atriðum í gleðigöngunni hefur fjölgað ár frá ári og mörg hver hafa verið einstaklega glæsileg. Til þess að setja upp gott atriði er mikilvægt að hugsa málin með fyrirvara. Góð atriði þurfa ekki að kosta mikla peninga. Gott ímyndunarafl og liðsstyrkur vina og vandamanna dugar oftast nær. Á verkstæði Hinsegin daga geta allir sem eru að setja saman atriði saumað og smíðað og nýtt sér það skraut sem er á boðstólum hverju sinni. Þau sem geta lagt til verkfæri, saumavélar og svo framvegis, vinsamlegast hafið samband við göngustjóra.

Þátttakendur sem ætla að vera með formleg atriði í göngunni verða að tilkynna það til Hinsegin daga fyrir 6. ágúst í síðasta lagi. Hægt er að skrá atriði á vefsíðunni www.gaypride.is eða með því að senda tölvupóst á kaos@simnet.is eða heimirmp@simnet.is. Einnig má hafa samband við Katrínu göngustjóra í síma 867 2399 eða Heimi Má framkvæmdastjóra í síma 862 2868.

-Hinsegin dagar í Reykjavík 2006

 

Leave a Reply