Skip to main content
search
Fréttir

Fundur – Samtök foreldra og aðstandenda

Tilkynningar Næsti fundur verður miðvikudaginn 8. maí í félagsmiðstöð Samtakanna ´78, Laugarveg 3, 4. hæð. Fundurinn hefst kl. 20:30. Ef fólk hefur þörf fyrir rólega stund og spjall fyrir fundinn er alltaf einhver til staðar frá kl 20:00.

Fundir eru haldnir 2. og 4. hvern miðvikudag hjá foreldrum og aðstandendum homma og lesbía veturinn 2002.

Markmið okkar er að hittast og deila hvert með öðru reynslu okkar, styrk og vonum. Við leggjum rækt við okkur sjálf og teljum að með því séum við betur aflögufær til að vera bakhjarlar við ástvini okkar.

Við vinnum að fræðslu bæði opnum fundum og einnig innan okkar hóps. Markmið okkar er að efla umræðu í okkar nánasta umhverfi og út í samfélagið til að auka skilning og þekkingu á samkynhneigð sem er fjölskyldumál.

Þökkum góða þátttöku á fræðslufundi okkar ?Um samkynhneigð ? trú og siðfræði? sem haldinn var í safnaðarheimili Grensáskirkju 27. apríl sl.

Samtakamátturinn er sterkasta aflið!

Leave a Reply