Skip to main content
Fréttir

Sunnudagskvöldið 22. maí – Regnbogamessa í Laugarneskirkju

By 12. maí, 2005No Comments

Frettir Regnbogamessa verður haldin í Laugarneskirkju sunnudaginn 22. maí kl. 20. Þar sameinast söfnuðirnir þrír umhverfis Laugardalinn, Langholts-, Ás- og Laugarnessöfnuður, í almennri kvöldmessu og kalla samkynhneigða, tvíkynhneigða og fjölskyldur þeirra sérstaklega til þessa samfélags. ÁST, Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf, stendur einnig að messunni.

Regnboginn táknar sáttmálann milli Guðs og manns, hann brúar bilið á milli manna sem hafa fjarlægst vegna fordóma og hræðslu hver við annan, hann felur í sér fyrirheit fjölbreytileikans og er tákn réttindabaráttu samkynhneigðra.

Regnbogamessan er tilboð um opið og öruggt samfélag í kirkju sem boðar skilyrðislausa gæsku Guðs. Í henni viljum við biðja saman og hvíla í samfélaginu við Guð sem hefur skapað okkur öll og elskar okkur öll.

Allir eru velkomnir í regnbogamessuna, enda er þjóðkirkjan öllum opin og kallar alla til samfélags, lofsöngs og bænagjörðar.

Leave a Reply