Skip to main content
Fréttir

HINSEGIN SAMTAKAPARTÝ Á CAFÉ OLIVER

By 14. febrúar, 2008No Comments

Samtökin ´78 bjóða upp á hinsegin Samtakapartý á Café Oliver laugardagskvöldið 16. febrúar. Partýið byrjar kl. 23:30 – tvíeykið DJ Þórir og DJ Skjöldur halda uppi stuði fram á nótt!

 

Drottningin og kóngurinn Georg og Halla himintungl taka á móti gestum og bjóða upp á óborganlegt konunglegt uppistand á miðnætti!

 

Fimmtíu félagar í Samtökunum ´78, MSC, KMK og FSS fá einn frían drykk til kl. 01 og má nálgast frímiðana á opnu húsi í Samtökunum ´78 fimmtudagskvöldið 14. febrúar.

 

Kvöldið er í boði Gordon´s Space og Café Oliver, sem býður upp á sérstakan Valentínusarkvöldverð í tilefni kvöldsins – Aðgangur er ókeypis!

 

Mætum öll hýr á brá og styðjum þannig félagið!

 

-Samtökin ´78

 

 

 

 

Leave a Reply