Skip to main content
Fréttir

FFS TIL FINNLANDS

By 11. apríl, 2006No Comments

FSS auglýsir eftir þátttakendum í ráðstefnu ANSO – Association of Nordic LGBT Student Organizations. Ráðstefnan verður haldin dagana 19. til 27. í Turku í Finnlandi ágúst og gestgjafar hennar er finnska systurfélag okkar Homoglobiini. Fjögur sæti eru ætluð íslenskum þátttakendum.

Eins og svo oft áður er allt uppihald frítt en ráðstefnugestir þurfa að bera sjálfir um það bil þriðjung ferðakostnaðar. Upplýsingar um ráðstefnuna má finna á pistlasafninu á síðu FSS, gaystudent.is. Upplýsingar um ANSO má finna á www.anso.dk.

Þeir sem hafa áhuga á að sækja ráðstefnuna fyrir hönd FSS sendi póst á
gay@hi.is   

Leave a Reply