Skip to main content
Fréttir

QUEER TANGÓ Á Q-BAR

By 14. júlí, 2007No Comments

Fimmtudaginn 19. júlí kl. 20 – 22 verður á Q-bar í Ingólfsstræti 3 kynning og kennsla fyrir byrjendur í queer tangó.

Lærið um argentískan tangó frá queer sjónarhorni –  allir munu læra að fylgja og leiða danssporin.

Per Berséus, sem kennir queer tagó í Svíþjóð, og María Shanko, tangódansari og kennari munu leiða okkur í gegnum fyrstu skrefin og útskýra hugmyndafræðina á bakvið queer tangó.

Pör sem og einstaklingar eru velkomin á lærdómsríkt og öðruvísi námskeið. Verð aðeins 500 kr.

Upplýsingar á heimasíðunni tangoadventure.com eða í síma 847 3566 .

– Q bar

 

Leave a Reply