Skip to main content
Fréttir

Fyrsta Regnbogamessan: – Söfnuðir sameinast í Regnbogamessu

By 3. desember, 2004No Comments

Tilkynningar Regnbogamessa verður haldin í Langholtskirkju sunnudaginn 12. desember kl. 20:00. Þar sameinast söfnuðirnir þrír umhverfis Laugardalinn – Langholtssöfnuður, Ássöfnuður og Laugarnessöfnuður – í almennri kvöldmessu á jólaföstu og kalla samkynhneigða og fjölskyldur þeirra sérstaklega til þessa samfélags. ÁST – Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf og ÆSKR – Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum, standa einnig að messunni.

Regnboginn táknar sáttmálann milli Guðs og manneskjunnar, hann brúar bilið á milli manna sem hafa fjarlægst vegna fordóma og hræðslu hver við annan, hann felur í sér fyrirheit fjölbreytileikans og hann er tákn réttindabaráttu samkynhneigðra.

Regnbogamessan er tilboð um opið og öruggt samfélag í kirkju sem boðar skilyrðislausa gæsku Guðs. Í henni viljum við biðja saman og hvíla í samfélaginu við Guð sem hefur skapað okkur öll og elskar okkur öll.

Allir eru velkomnir í regnbogamessuna, enda er þjóðkirkjan öllum opin og kallar alla til samfélags, lofsöngs og bænagjörðar.

-Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf

Leave a Reply