Skip to main content
Fréttir

SAMTÖKIN ´78 OG REYKJANESBÆR SKRIFA UNDIR ÞJÓNUSTUSAMNING TIL ÞRIGGJA ÁRA

By 14. júlí, 2008No Comments

Samtökin ´78 munu annast skipulagða fræðslu um samkynhneigð fyrir starfsstéttir, skólafólk og áhugahópa í Reykjanesbæ næstu þrjú árin. Það er Samtökunum ´78 ánægjuefni að tilkynna undirritun þjónustusamnings við Reykjanesbæ. Samningurinn gildir næstu þrjú árin og  munu Samtökin ´78 annast skipulagða fræðslu  fyrir fagaðila hjá Reykjanesbæ, svo sem fyrir kennara, leikskólakennara, skólahjúkrunarfræðinga, félags- og námsráðgjafa og fleiri hópa sem sinna félagslegum stuðningi og ráðgjöf.

Leave a Reply